Proled_2
Prodomo

LED rúllur

Frá því að Prodomo hóf sölu á LED búnaði frá Proled hafa viðbrögðin farið fram úr okkar björtustu vonum. LED rúllurnar hafa slegið sérstaklega í gegn. Þessar LED rúllur koma á borða sem hægt er að beigja og móta og eru með tveggja þátta límbandi að aftan. Við höfum haft gott úrval en lengjurnar er hægt að fá einlitar í þremur styrkleikum.

  • Flexstrip 300 er lengja sem gefur um 230 lumen á hvern mtr.
  • Flexstrip 600 er lengja sem gefur um 460 lumen á hvern mtr.
  • Flexstrip HD er lengja sem gefur um 650 lumen á hvern mtr.

Þá bjóðum við einnig uppá lengjurnar í RGB útgáfu (litskiptanlegum) og í rakaþéttum IP54 og IP68 rúllum. Rúllurnar koma í 5mtr lengd en hægt er að fá einnig 2,5mtr. Þá er einnig hægt að fá sérstaka álprófíla til að líma lengjurnar í.

Hafið samband við sölumann ef þörf er á nánari upplýsingum, eða komið við í sýningarsal okkar þar sem við sýnum allar gerðir.