Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð að Skógarbraut 918 í Reykjanesbæ. 

Eignin hefur mikið verið endurnýjuð. Harðparket á gólfum er frá Parka sem og hurðar. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar frá Byko og innrétting frá Parka. Nýleg heimilistæki eru í eldhúsi og  sérsmíðuð innrétting frá Parka. Rafmagn hefur verið endurnýjað og eru rofar og tenglar nýlegir. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflur.  Búið er að endurnýja skolp út fyri sökkul, skipta um neysluvatns lagnir, ofnalagnir og ofna.  Gluggar hafa verið endurnýjaðir sem og svalahurðar, svalir eru einnig nýlegar. Blokkin var máluð að utan sumarið 2023.

Nánari lýsing íbúðar:
Stofa
með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Eldhús með parketi á gólfi og nýlegri fallegri innréttingu með helluborði, ofni, háf, ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í herbergjum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Nýleg hvít innrétting, speglaskápur með led lýsingu að neðan, upphengt salerni, hankdklæðaofn og sturta. Hreinlætistæki frá Byko.
Þvottahús / geymsla með flísum á gólfi. Þar er skápur.

Köld hjólageymsla er við gafl hússins  Sameign er mjög snyrtileg, nýlega máluð og á gólfum eru nýleg gólfefni, vínil flísar og teppi.

Allar upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skógarbraut

262 - Reykjanesbær
44.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 79fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 28.100.000
Brunabótamat: 39.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin