Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir Í einkasölu 3ja herbergja íbúð á annarri hæð ( frá Suðurgötu ) í fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri að Suðurgötu 4a í Keflavík.  
Frábær staðsetning í hjarta bæjarins. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari lýsing:
Forstofa
 með parketi á gólfi og þar er góður skápur.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Eldhús með parketi á gólfi og beyki innréttingu með flísum á milli skápa.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Beyki innrétting, upphengt salerni og sturta. 
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum og það eru fataskápar í þeim báðum.
Þvottahús málað gólf, skolvaskur og hillur.
Geymsla með máluðu gólfi og hillum.


*Eginin er á góðum stað í hjarta bæjarins.
*Sameign mjög snyrtileg
*Merkt bílastæði fylgir eigninni

Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali  í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Suðurgata

230 - Keflavík
43.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 83fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1992
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Fasteignamat: 41.250.000
Brunabótamat: 41.900.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin