Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega fallega þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sér inngangi að Reynidal 7 í Njarðvík.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu rými. Þar er parket á gólfi. Stílhrein eldhús innrétting með góðu skápa og vinnuplássi þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél. Útgengt á verönd.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.  Inn af baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi og ljósri innréttingu.
Geymsla er innan íbúðar, parket á gólfi. Þar er gluggi og því mögulegt að nýta rýmið sem herbergi.

Merkt bílastæði fylgir eigninni. Á baklóð er góð verönd sem snýr til suðvesturs. Frábær staðsetning þar sem stutt er í glæsilegan nýjan grunn- og leikskóla, Stapaskóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Reynidalur

260 - Njarðvík
61.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 97fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2020
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 54.200.000
Brunabótamat: 45.900.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin