Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt parhús ásamt bílskúr að Sjafnarvöllum 14 í Keflavík.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er ljós innrétting með flísum á milli skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á verönd.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er hiti í gólfi, hvít innrétting, upphengt salerni og sturtuklefi.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Þvottahús með flísum á gólfi og ljósri innréttingu. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Bílskúr með epoxy á gólfi. Þar er hurðaopnari og gott geymsluloft. Útgengt á baklóð.

Alrými eignarinnar er opið og bjart með mikilli lofthæð.  Bílaplan og stétt er steypt og í því er hitalögn. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Á baklóð er góð verönd með skjólveggjum. Járn á þaki hefur verið endurnýjað.
Mjög snyrtileg, vönduð og vel við haldin eign sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420/4030 - 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu

Sjafnarvellir

230 - Keflavík
74.500.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 133fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1999
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 73.450.000
Brunabótamat: 73.450.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin