Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu tveggja herbergja 65,9 fm íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri við Suðurgötu 6 í Keflavík.  

Nánari lýsing:
Forstofa hefur parket á gólfi og þar er skápur.
Stofa hefur parketi á gólfi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting við vask og sturtuklefi. 
Eldhús með parketi á gólfi og innréttingu með flísum á milli skápa.
Svefnherbergið er með dúk á gólfi, fataskáp og útgent er á svalir sem snúa að skrúðgarðinum.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar, þar er málað gólf, hillur, vaskur og gluggi. Einnig er þvottahús í sameign.
Sér geymsla á neðstu hæð.

*Eginin er á góðum stað í hjarta bæjarins.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Suðurgata

230 - Keflavík
36.000.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 65fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1955
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 29.150.000
Brunabótamat: 36.950.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin