Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð að Bogabraut 952 Reykjanesbæ.

*Nýleg gólfefni
*Endurnýjað eldhús
*Baðherbergi endurnýað 
*Nýlegar innihurðar
*Rafmagn endurnýjað að hluta og eru rofar og tenglar nýlegir

Nánari lýsing:
Anddyri
 með parketi á gólfi og fataskáp
Eldhús með parketi á gólfi, nýlegri hvítri innréttingu og nýlegum tækjum.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgegnt á svalir.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum og fataskápar eru í báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi  Þar er hvít innrétting, handklæðaofn og sturta. Sameignlegt þvottahús er á hæðinni fyrir fjórar íbúðir.
Sér geymsla fylgir íbúðinni.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó Hákonarson löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 / 420-4030 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Bogabraut

262 - Reykjanesbær
42.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 91fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1969
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 36.650.000
Brunabótamat: 41.450.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin