Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir fallega þriggja herbergja íbúð á annarri hæð að Mávabraut 7 í Keflavík.
Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki ásamt flestri þjónustu.

Eignin var mikið endurnýjuð að innan árið 2020. 
** Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð.   
** Rafmagn og tafla hefur verið endurnýjað og voru rofar og tenglar endurnýjaðir. 
** Gluggar endurnýjaðir 2021
** Þak endurnýjað 2020. 
** Neysluvatns lagnir voru endurnýjaðar árið 2007. 
** Húsið hefur verið sprunguviðgert og port málað. 

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er hvít stílhrein innrétting með innbyggðum ísskap / frysti, uppþvottavél, span helluborði og svörtum háf.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er út...
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Lítil hvít innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Þvottahús með parketi á gólfi. Hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sér geymsla í sameign.

Alla nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Mávabraut

230 - Keflavík
39.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 66fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1976
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 33.100.000
Brunabótamat: 28.800.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin