Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu gott 133,7 fm raðhús við Akurbraut 36 í Reykjanesbæ á einni hæð þar af er 29,7 fm innbyggður bílskúr.  

Eignin skiptist í forstofu, stofu, sólstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.


Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp. Inn af forstofu er þvottahús.
Stofan hefur parket á gólfi, hún er rúmgóð og opin.
Sólstofa er í húsinu og hefur hún flísar á gólfi, hurð er út á stóra afgirta verönd með heitum potti  frá sólstofu.
Eldhús hefur flísar á gólfi, góða innréttingu með flísum á milli skápa og hurð út að framan. Nýlegur bakarofn og uppþvottavél sem fylgir með.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, upphengt klósett, handklæðaofn, góða innréttingu og sturtu.
Barnaherbergin eru tvö og hafa þau bæði parket á gólfi, fataskápur er í öðru þeirra.
Hjónaherbergi er rúmgott og hefur parket á gólfi og góðan fataskáp.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, vask og hillur. Gengið er inní bílskúr frá þvottahúsi.
Bílskúr er rúmgóður með rafmagnsopnun og hleðslustöð. 

*Húsið stendur á góðum stað þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
*Gólfhiti er í húsinu.
*Afgirt stór verönd með heitum potti.
*Innkeyrslan er hellulögð og með hitalögn.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 

Akurbraut

260 - Njarðvík
71.900.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 133fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 68.300.000
Brunabótamat: 58.020.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin