Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir glæsilega tveggja herbergja íbúð á annarri hæð að Tjarnargötu 3 í Keflavík.  
Íbúð ásamt geymslu er 44,5 fm auk svala sem eru 3,5 fm.  Frábær staðsetning í hjarta bæjarinns.

Árið 2019 var eignin töluvert endurnýjuð að utan sem innan.  Nýleg sérsmíðuð innr*étting frá SB smíði og tæki eru í eldhúsi. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar frá Ebson og sérsmíðuð innrétting frá SB smíði.  Rafmagn hefur verið endurnýjað og eru rofar og tenglar nýlegir. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflur.  Búið er að skipta um neysluvatns lagnir. Gólfhiti með digital stýringu frá Danfoss.  Eignin er flisalögð að utan og á henni eru nýlegar svalir. Járn á þaki hefur verið endurnýjað.


Nánari lýsing íbúðar 203:
Forstofa með með parketi á gólfi og fataskáp
Eldhús með parketi á gólfi og nýlegri fallegri hvítri innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Þar er innbyggður ísskápur með frysti.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergi  með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að mestu. Nýleg hvít innrétting, upphengt salerni og sturta. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Sér geymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla/vagna geymslu. Sameign er mjög snyrtileg,
 

Allar nánari upplýsingar veitia:


Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Tjarnargata

230 - Keflavík
29.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 44fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1960
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Fasteignamat: 28.100.000
Brunabótamat: 25.500.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin