Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt 158,8 fm steypt parhús ásamt bílskúr að Heiðarholti 4 í Garði, Suðurnesjabæ.

Nánari lýsing:
Forstofa er mjög rúmgóð og hefur flísar á gólfi og góðan fataskáp.
Stofa/borðstaofa hefur parket á gólfum, stóra glugga og hurð út á verönd
Eldhús er opið við stofu og hefur parket á gólfum og góða innréttingu ásamt eyju.
Baðherbergi er glæsilegt og var allt tekið í gegn 2022, flísar á gólfi og veggjum, stílhrein innrétting, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi, góðan fataskáp og hurð út á lóð.
Barnaherbergin eru þrjú og öll hafa þau parket á gólfum og fataskápar í tveimur þeirra.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góða innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þvottahús er inn af bílskúr og er hurð frá þvottahúsi út á baklóð.
Nýlegur 100 fm pallur ásamt heitum potti er á baklóð.
Bílskúr hefur málað gólf, rafmagnsopnun á hurð og er geymslu loft yfir hluta af bílskúr.

*Mjög vegleg eign í alla staði. Alrými eignarinnar er opið og bjart.
*Hiti er í öllum gólfum eignarinnar, parket og flísar á gólfum
*Fjögur svefnherbergi
*Innkeyrsla er hellulögð og með hitalögn

Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Heiðarholt

250 - Garður
78.500.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 158fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 57.200.000
Brunabótamat: 75.030.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin