Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir fjögurra til fimm herbergja einbýlishús ásamt bílskúr að Faxabraut 72 í Keflavík.


Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi. Góð innrétting með eyju, helluborði og háf. Þaðan er útgengt á verönd.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi og veggjum. Þaðan er innangengt í bílskur.
Frá bílskúr er aðgengi að herbergi með flísum á gólfi. 
Bílskúr upphitaður og með rafmagni. Rafmagnsopnun er á bílskúrshurð

Innkeyrsla og stétt er steypt og hellulögð. Hitalögn er í hluta þess. Á baklóð er verönd með skjólveggjum, heitum potti og gróðurhúsi.


Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Faxabraut

230 - Keflavík
82.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 159fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1964
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 68.450.000
Brunabótamat: 60.700.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin