Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 107,2 fm húsnæði sem er í dag skipt niður í tvo hluta, annarsvegar íbúð 56,3 fm og svo eitt opið rými alls 50,9 fm.

Sammþykktar teikningar liggja fyrir og möguleiki að vera með tvær íbúðir með sér inngang og sitthvort fastanúmerið.


Nánari lýsing íbúð:
Forstofa hefur parket á gólfi og fatahengi.
Eldhús hefur parket á gólfi, fína innréttingu og er opið við stofu.
Stofa hefur parket á gólfi og stóra glugga.
Herbergi hefur parket á gólfi 
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, innréttingu við vask og sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél á baðherbergi.

Nanari lýsing opið rými:
Um er að ræða eitt opið rými með eldhús krók, salernis aðstöðu og geymslu.
Stórir gluggar og sér inngangur, möguleiki á að gera íbúð í þessum hluta og liggja fyrir samþykktar teikningar.
Hárgreiðslu stofa var starfrækt í húsnæðinu í mörg ár og í dag er þar starfrækt rafverkstæði.

Húsnæði með mikla möguleika sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.





 

Heiðartún

250 - Garður
49.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 107fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1990
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 20.400.000
Brunabótamat: 27.250.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin