Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu tveggja herbergja íbúð á annari hæð að Brekkustíg 29, 260 Reykjanesbæ.

***Nýlegir gluggar
***Svalahurð nýleg
***Baðherbergi nýlega tekið í gegn
***Nýlegt parket á stofu og herbergi
***Stórar svalir 
***Sér merkt bílastæði


Nánari lýsing:
Stigagangur er snyrtilegur og með teppi.
Forstofa/hol hefur flísar á gólfi.
Eldhús hefur flísar á gólfi, hvíta innréttingu þar sem er flísar eru á milli efri og neðri skápa.
Þvottahús hefur innréttingu fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð og skápa.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, snyrtilega innréttingu við vask og sturtu.
Stofa hefur parket á gólfi og hurð út á stórar svalir.
Rúmgóð geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.
Hjólageymsla, sameiginleg geymsla og þurrkherbergi eru á neðri hæð í sameign.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.






 

Brekkustígur

260 - Njarðvík
39.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 58fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1985
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 32.850.000
Brunabótamat: 36.650.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin