PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu nýlegt og vel skipulagt þriggja herbergja raðhús á einni hæð. Skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 83.1 fm
Nánari lýsing:
Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi. Vönduð raftæki og ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél.
Stofan og borðstofa í opnu rými með eldhúsi, bjart og rúmgott rými með gólfsíðum gluggum og hurð út á verönd með nýlegum skjólveggjum.
Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni og walk in sturta. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara á baðherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Geymsla er innan íbúðar.
*Gólfhiti.
*Bílastæði fyrir tvo bíla.
*Rafhleðslustöð fylgir með.
*Verönd með nýlegum skjólvegg og lagnaleiðir fyrir pott.
Húsið er bárujárnsklætt timburhús með vönduðum innréttingum og byggt árið 2020. Eign á góðum stað í Reykjanesbæ þar sem stutt er í nýlegan og glæsilegan Stapaskóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug.
Um er ræða mjög snyrtilega eign í fjögra íbúðan raðhúsalengju í hverfi sem er í mikilli uppbyggingu og stutt út á Reykjanesbraut.
Fasteignamat 2026 er 63.800.000 kr
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
[email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Grenidalur
260 - Njarðvík
64.700.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 83fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2020
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 56.500.000
Brunabótamat: 46.350.000