Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu snyrtilegt 151fm parhús í Njarðvík. Um er að ræða 4ra herbergja eign á góðum stað þar sem stutt er í skóla og leikskóla. Eignin hefur stóra afgirta verönd til suðurs.

Forstofan hefur flísar á gólfi, þar er góður fataskápur.
Eldhús hefur flísar á gólfi, hvítlakkaða innréttingu með innbyggðri uppþvottavél. Eldhús er opið inn í stofu.
Herbergin eru þrjú og hafa þau öll parket á gólfum. 
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og og veggjum, baðkar með sturtu, snyrtilega innréttingu með góðu skápaplássi og glugga.
Stofa / borðstofa hefur parket á gólfi, hurð er út á sólpall frá stofu.
Þvottahús hefur góða innréttingu með miklu skápaplássi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð, gengið er inní bílskúr frá þvottahúsi.
Bílskúrinn er rúmgóður, rafmagnsopnun á bílskúrshurð. Gert er ráð fyrir geymslu/herbergi í enda skúrs en er í dag eitt opið rými. Það á eftir að klæða hluta lofts og fylgja plötur með.
Lóð er snyrtileg og bílaplan hellulagt og hefur snjóbræðslukerfi.

**Stór sólpallur sem snýr í suður**
**Heitur pottur á verönd**
**Nýlega búið að endurnýja hluta af hitaveitu grind **
**Stórt bílaplan**


Snyrtileg eign á vinsælum stað sem vert er að skoða 

Allir nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Svölutjörn

260 - Njarðvík
84.000.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 151fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 75.500.000
Brunabótamat: 68.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin